Sérviðburðir
Nú bjóðum við einnig upp á sérviðburði í takt við árstíðir og tunglhringinn, t.d.:
• Rósa-dekur gufa við Ægissíðu þar sem gestum býðst að prófa rósalínuna og jurta-tinktúrur, taka létta gufustund með hugleiðslu og jafnvel dýfa tánum í sjóinn.
• Mjúkt dansflæði undir fullu tungli, í bland við jurtate og fróðleik, hugleiðslu, djúpslökun og tónheilun.
• Mjúk raddopnun og söngstund með þulum og einföldum íslenskum vísum ásamt jurtate og fróðleik, hugleiðslu, djúpslökun og tónheilun.
• Leiddar hugleiðslur í takt við sjálfsnudd með olíum frá La Brújería, ásamt fróðleik og tónheilun í lokin.Þetta eru aðeins hugmyndir — ef að þið hafið sérstakar óskir er hægt að sérsníða viðburðinn í takt við þinn hóp.
Þetta eru aðeins hugmyndir — ef að þið hafið sérstakar óskir er hægt að sérsníða viðburðinn í takt við þinn hóp.
Við bjóðum upp á einkaviðburði fyrir stóra og smáa hópa.
Verðbil: 30,000–45,000 kr.
Smelltu hér til að hafa samband og bóka stund fyrir þinn hóp.
Við erum með aðstöðu í Síðumúla í meðalstórum sal, og tökum einnig að okkur að mæta í heimahús þegar við á.
La Brújería býður upp á töfra náttúrunnar í gegnum hreinar jurtir og lífrænar olíur fyrir húðina, magnað Aztek sprey sem tekur á hversdagslegum kvillum, reykelsi, cacao og handgerða muni frá Mexikó.
Hafðu samband
Við tökum vel á móti spurningum eða ábendingum. Sendið fyrirspurnir á